Samantekt um þingmál

Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

542. mál á 149. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að kveða á um álagningu stjórnvaldssekta til að stuðla að betri framfylgd laganna hjá rekstraraðilum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að Umhverfisstofnun fái heimildir til að leggja stjórnvaldssektir á einstaklinga eða lögaðila, sem brjóta gegn tilteknum ákvæðum laganna eða ákvörðunum teknum samkvæmt þeim. Einnig er gert ráð fyrir að tilteknum rekstraraðilum verði gert skylt að skila árlega til Umhverfisstofnunar tilteknum upplýsingum, m.a. um losun mengandi efna frá hverri starfsstöð og upplýsingum um hráefnanotkun. Þá er lagt til að einfalda ferli við veitingu tímabundinnar undanþágu frá kröfu um starfsleyfi og að útgefanda starfsleyfis verði gefin heimild til þess að framlengja gildistíma eldra starfsleyfis tímabundið.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lög um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
Lög um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum, nr. 40/2015.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð. 

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla um eftirfylgni: Sorpbrennslur með undanþágu frá tilskipun ESB. Ríkisendurskoðun, mars 2014.


Síðast breytt 18.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.